Sending

2.000 kr
| /

ÁHRIFARÍKT EFNI SEM SNERTIR OG VEKUR TIL UMHUGSUNAR

Árið er 1982. Sjómannadagurinn er framundan. Það er barist í Palestínu og Bubbi Morthens túrar með Egó um landið til þess að kynna nýjustu plötu sveitarinnar: Breyttir tímar. Ungur drengur hefur verið sendur í fóstur til barnlausra hjónaleysa vestur á fjörðum. Konan tekur drengnum opnum örmum en tilfinningar mannsins eru flóknari og ekki líður á löngu þar til líf hjónanna umturnast. Veruleiki drengsins og hjónaleysanna virðist á einhvern undarlegan hátt hanga saman. Hver er þessi drengur og til hvers er hann kominn? Leikritið er leikur með tíma og rými, og gerir bjargarleysi og útskúfun að meginviðfangsefni sínu.

Bjarni Jónsson er eitt af okkar öflugustu leikskáldum og hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. Grímuverðlaunin, Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin auk þess sem hann hefur verið tilnefndur í tvígang til Norrænu leikskáldaverðlaunanna.