Ríkharður III

2.000 kr
| /

Þá skal ég verða verstur allra þrjóta.

Ríkharður III, sló í gegn í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur og hlaut mikið lof. Leikritið, sem er eitt af fyrstu leikritum Shakespeares, var frumflutt fyrir meira en fjögur hundruð árum og hefur ekki á nokkurn hátt misst gildi sitt nú á tímum þegar siðmenning og mannúð eiga undir högg að sækja.

Ríkharður III er valdasjúkur maður sem svífst einskis til að verða konungur Englands. Hann vílar ekki fyrir sér að myrða þá sem ryðja þarf úr vegi og kvæna sér leið að krúnunni. Ríkharður glímir við fimm kynslóðir kvenna sem gera allt til að hindra framgöngu hans. En hann er útsmoginn og óútreiknanlegur, tungulipur og eldsnöggur að hugsa, leikari og leikstjóri í eigin sjónarspili sem hann spinnur áfram af óhugnanlegri snilld.

Sýningin var sigurvegari Grímuverðlaunanna árið 2019 og fékk alls sex verðlaun; sýning ársins, Brynhildur Guðjónsdóttir var leikstjóri ársins, Hjörtur Jóhann Jónsson leikari ársins í aðalhlutverki, Ilmur Stefánsdóttir fékk verðlaun fyrir leikmynd ársins, Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga ársins og Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir lýsingu ársins. Auk þess var Edda Björg Eyjólfsdóttir tilnefnd sem leikkona ársins í aðalhlutverki og Baldvin Magnússon og Daníel Bjarnason fyrir hljóðmynd ársins.